Kappræður - Áfram Ísland og já til að sjá - CAD live podcast
Áfram Ísland og Já til að sjá mætast í Austurbæjarbíói
📍 Austurbæjarbíó
🕗 Þriðjudaginn 18. ágúst kl. 20:00
Fulltrúar Já til að sjá mæta fulltrúum Áfram Ísland í Austurbæjarbíói. Þau Hjálmar Vilhjálmsson framkvæmdarstjóri og Kristrún Ágústdóttir verkfræðinemi mæta fyrir hönd Já til að sjá í umræður á móti fulltrúum Áfram Ísland í Austurbæjarbíói þriðjudaginn 18. ágúst kl. 20. Kvöldinu verður skipt í tvennt, þar sem Kristrún mætir Birtu Karen Tryggvadóttur og Hjálmar Vilhjálmsson mætir Þórði Gunnarssyni. Rætt verður um allt sem tengist Evrópusambandinu og mögulegar aðildarviðræður Íslands að sambandinu sem verður kosið um þann 29. ágúst. Kvöldinu verður stýrt af hlaðvarpsstjórnendunum Birki Karli Sigurðssyni og Leifi Þorsteinssyni úr Chess after Dark.